
2.4K
Downloads
6
Episodes
Með Laxness á heilanum er hlaðvarpssería á vegum Gljúfrasteins. Í þáttunum er rætt við fólk sem er hugfangið af verkum Halldórs Laxness og hugmyndum hans um líf og tilveru. Umsjónarkona er Margrét Marteinsdóttir. Upphafs- og lokalag þáttanna gerði Sigrún Jónsdóttir, tónskáld en það er tilbrigði við lag sem Halldór Laxness söng við ljóð sitt Maístjörnuna í viðtalið við Pétur Pétursson á Gljúfrasteini árið 1987.
Episodes

Friday Oct 23, 2020
13 ára barn náttúrunnar
Friday Oct 23, 2020
Friday Oct 23, 2020
Í öðrum þætti talar Jökull Jónsson, þrettán ára Reykvíkingur um Barn náttúrunnar, fyrstu skáldsögu Halldórs Laxness en Jökull hefur lesið bókina nokkrum sinnum. Jökull sem er í Hagaskóla er líka að læra jazz í FÍH, hann spilar á píanó, er ljóðaunnandi og semur sjálfur ljóð. Hann langar að verða tónlistarmaður. Jökull er einnig ötull baráttustrákur í umhverfismálum. Margrét hitti hann á dögunum á veitingastað í Skerjafirði.
No comments yet. Be the first to say something!